Hoppa yfir valmynd

Yfir­ferð slökkvi­tækja

Örygg­is­mið­stöðin mætir með starf­semi sína á Vest­ur­byggð og tekur á móti slökkvi­tækjum í hleðslu og yfir­ferð. Fyrir­tækið verður einnig með slökkvi­tæki og annan eldvarn­ar­búnað til sölu á Bíldudal.


Skrifað: 30. apríl 2025

Tekið verður á móti slökkvitækjum frá mánudegi til fimmtudags, dagana 12-15. maí 2025.

Vinsamlegast merkja tækin með fullu nafni og kennitölu.Tækjunum verður skilað 1-2 dögum síðar.

Móttaka slökkvitækja – Staðsetningar:

  1. Patreksfjörður – Áhaldahús Patreksfjarðar
  2. Tálknafjörður – Verslunin Hjá Jóhönnu ehf.
  3. Bíldudalur – Nýja Slökkvistöðin
  4. Barðaströnd – Dreifbýli – vinsamlegast hafið samband.

Nánari upplýsingar veita:

  • Þorgils Ólafur, sími: 820 2413
  • Alexander Maron, sími: 8426283