Yfirferð slökkvitækja í maí
Öryggismiðstöðin mætir með starfsemi sína á svæðið og tekur á móti slökkvitækjum í hleðslu og yfirferð dagana 4-8. maí 2026.
Fyrirtækið verður einnig með til sölu slökkvitæki og annan eldvarnarbúnað, svo sem reykskynjara og eldvarnarteppi.
Nauðsynlegar upplýsingar á tækjum sem koma í yfirferð/hleðslu:
- Fullt nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Símanúmer
Tækjunum verður skilað 1-2 dögum síðar.
Staðsetningar móttöku slökkvitækja:
- Slökkvistöðin á Patreksfirði, Þórsgötu 7
- Hjá Jóhönnu á Tálknafirði, Strandgötu 36
- Slökkvistöðin á Bíldudal, Strandgötu 14b
Nánari upplýsingar veitir Alexander Maron í síma 842 6283.