Rafrænir reikningar
Sveitarfélagið tekur eingöngu við reikningum sem berast í gegnum rafræna skeytamiðlun. Nýr möguleiki á heimasíðu sveitarfélagsins gerir öllum kleift að senda rafræna reikninga án kostnaðar.
Sveitarfélagið tekur nú eingöngu við rafrænum reikningum sem berast í gegnum rafræna skeytamiðlun. Ekki er lengur tekið við reikningum sem berast í bréfpósti eða sem PDF-skjöl í tölvupósti.
Til að auðvelda þjónustuaðilum skil á reikningum hefur verið bætt við hlekk á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem hægt er að senda rafræna reikninga í gegnum rafræna skeytamiðlun. Þessi leið er öllum opin og er án kostnaðar fyrir sendanda reiknings.