Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla 2026

Boðað hefur verið til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB laug­ar­daginn 29. ágúst 2026. Allar upplýs­ingar um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2026 er að finna á kosn­ingavef lands­kjör­stjórnar og inn á island.is


Kjörstaðir

Kjör­staðir í Vest­ur­byggð verða opnir sem hér segir:

Patreks­fjörður – Kosið í safn­að­ar­heim­ilinu að Aðalstræti 52. Frá klukkan 10:00 til klukkan 20:00.

Bíldu­dalur – Kosið í félags­heim­ilinu Bald­urs­haga. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.

Kross­holt – Kosið í Birki­mels­skóla á Barða­strönd. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.

Tálkna­fjörður – Kosið í Tálkna­fjarð­ar­skóla. Frá klukkan 10:00 til klukkan 18:00.

Íbúar fyrrum Rauðasands­hrepps eru skráðir í kjör­deild­inni á Patreks­firði.

Lokun kjör­staða
Samkvæmt 91. gr. kosn­ing­ar­laga nr. 112/2021 má ekki slíta kjör­fundi fyrr en átta klukku­stundir eru liðnar frá því að hann hófst og ekki fyrr en hálf klukku­stund er liðin frá því að kjós­andi gaf sig síðast fram. Kjör­fundi má þó slíta er allir sem á kjör­skrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukku­stundir ef öll kjör­stjórnin og umboðs­menn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukku­stund liðin frá því að kjós­andi gaf sig síðast fram. Kjör­fundi skal þó slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag. Þeir kjós­endur sem hafa gefið sig fram fyrir þann tíma eiga þó rétt á að greiða atkvæði.


Yfirkjörstjórn

Thelma Dögg Theo­dórs­dóttir

Sigurvin Hreið­arsson

Edda Eiríks­dóttir

Yfir­kjör­stjórn verður með aðstöðu í ráðhúsi Vest­ur­byggðar á meðan á kosn­ingu stendur.