Námsvísir
Í sameiginlegum inngangskafla fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla eru skilgreindir grunnþættir í íslenskri menntun. Þessir grunnþættir eru:
- læsi
- sjálfbærni
- heilbrigði og velferð
- lýðræði og mannréttindi
- jafnrétti
- sköpun
Grunnþættir í menntun ásamt áhersluþáttum grunnskólalaga skulu vera leiðarljós í almennri menntun og starfsháttum í grunnskóla. Þeir eiga að birtast í inntaki námsgreina og námssviða aðalnámskrár, í hæfni nemenda, námsmati, skólanámskrá og innra mati skólans. Grunnskólinn er eina skólastigið sem nemendum er skylt að sækja og er því mikilvægur vettvangur til að þroska með nemendum hæfni í anda grunnþáttanna og sem búa þau undir þátttöku í lýðræðissamfélagi.
Í námi og kennslu ber samkvæmt ákvæði í 24. gr. laga um grunnskóla að leggja áherslu á ýmsa þætti í námi og kennslu. Þessir áhersluþættir eru nánari útfærsla á markmiðsákvæði laganna og grunnþáttum í íslenskri menntun. Þeir eiga það flestir einnig sammerkt að vera ekki bundnir við einstakar námsgreinar eða afmarkaða þætti skólastarfs heldur þurfa þeir að vera almennt leiðarljós í allri menntun í grunnskóla, bæði formlegri og óformlegri og í starfsháttum skóla.
Grunnþáttalotur
Heilbrigði og velferð – 28. ágúst til 6. október
Að nemendur þekki sjálfan sig og fjölskyldu sína, eigin líðan og sjálfan sig sem námsmann og manneskju í samfélagi manna. Eigin styrkleika og veikleika, skráðar og óskráðar reglur.
Lýðræði og mannréttindi – 9. október til 17. nóvember
Að nemendur þekki rétt sinn til að hafa áhrif og taka þátt í samfélaginu, hafa tilgang. Skilja samfélög og tilgang, ástæður og tengsl við aðra mikilvæga þætti.
Læsi – 20. nóvember til 22. desember
Að nemendur tileinki sér mikilvægi læsis í víðum skilningi. Læri að tjá sig í ræðu og riti, tjá tilfinningar og skoðanir á öruggan og persónulegan hátt. Skilji hvaða tjáningarform henti þeim best og njóti þess að taka virkan þátt.
Jafnrétti – 3. janúar til 16. febrúar
Að nemendur skilji hvernig allir hafi rétt á að fá að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýnis og jafnréttis án fordóma og mismununar.
Sköpun – 19. febrúar til 12. apríl
Að nemendur njóti þess að skapa og uppgötva, örva forvitni og áhuga, virkja ímyndunarafl og leika sér með möguleika. Sköpun byggist á forvitni, áskorun, spennu og leit að lausn með ólíkum aðferðum hvers og eins.
Sjálfbærni – 15. apríl til 31. maí
Að nemendur skilji að við berum ábyrgð á því að jörðin sé og verði sjálfbær. Skilningur á eigin vistspori, vistspori samfélaga og þjóða sem stuðlar að sjálfbærri þróun og hófsemi.