Þorrablót Bíldudalsskóla
Fimmtudaginn 29. janúar næstkomandi verður hið árlega þorrablót haldið í Bíldudalsskóla.
Foreldrar/forráðamenn, ömmur og afar, leik- og grunnskólans eru hjartanlega velkomin að koma og njóta með okkur.
Nemendur verða með skemmtilegar kynningar á verkefnum, við bjóðum upp á smakk á þorramat og að sjálfsögðu endum við í dansi þar sem kokkurinn verður sunginn.
Við viljum koma hjartanlegum þökkum til Artic Fish og Grétars Guðfinnssonar en við fengum veglega styrki frá þeim.
Staðsetning:
Bíldudalsskóli/Skrímslasetrið.
Tími: 10:30-12:00.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Skrifað: 27. janúar 2026