Skólaráð
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.
Fundargerðir skólaráðs
Starfsáætlun skólaráðs
Skólaráð gerir sér starfsáætlun og í henni kemur fram hversu oft fundir verða haldnir, hvenær og hvar. Þar er einnig tilgreint hvenær skólaráðið ætlar að halda opinn fund fyrir skólasamfélagið um málefni skólans og annan með stjórn nemendafélagsins. Ef skólaráðið vill leggja áherslu á stefnu varðandi tiltekinn málaflokk, svo sem sérstaka námsgrein, samskipti, líðan nemenda, umhverfismál eða annað, ætti það að koma fram í starfsáætluninni.
Skólaráð Bíldudalsskóla 2024-2025
- Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri
- Signý Sverrisdóttir, fulltrúi kennara
- Elínborg Anika Benediktsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskólans
- Jóna Sigríður Runólfsdóttir, fulltrúi starfsfólks
- Védís Eva Elfarsdóttir, fulltrúi nemenda
- Gunnar Nökkvi Elfarsson, fulltrúi nemenda
- Ioana Lucia Nordli, fulltrúi foreldra
- Emilía Sara Bjarnadóttir, fulltrúi foreldra
- Jörundur Steinar Garðarsson, fulltrúi grenndarsamfélagsns