Lestrarátak í Patreksskóla
13. apríl – 22. maí 2026
Skrifað: 10. apríl 2026
Mánudaginn 13. apríl hefst sex vikna lestrarátak í Patreksskóla.
Hvert stig skólans vinnur með mismunandi texta á skemmtilegan og skapandi hátt.
Til að árangur náist þarf gott samstarf heimila og skólans og virka þátttöku foreldra en það er algert lykilatriði.
Nú hafa allir foreldrar fengið sendan póst með upplýsingum um þá vinnu sem fer fram innan skólans og þeirri vinnu sem lagt er upp með að unnin sé heima.