Gróðursetning í Yrkjuskógi haustið 2023
Fimmtudaginn 14.september fóru nemendur í 1.bekk upp í Yrkjuskóg skólans og gróðursettu birkiplöntur.
Skrifað: 22. september 2023
Fimmtudaginn 14.september fóru nemendur í 1.bekk upp í Yrkjuskóg skólans og gróðursettu birkiplöntur. Hver nemandi var með um 3 plöntur og var grafin hola, sett mold og tré niður við stiku með nafni hvers nemanda.
Foreldrar komu með börnunum sínum og kennarar. Félagar úr skógræktarfélagi Patreksfjarðar, þeir Eiður og Símon komu til að aðstoða.
Frábær hefð á hverjum ári og er skógurinn okkar orðinn mjög hávaxinn og fallegur.
Takk öll sem mættu til að gróðursetja og fóru 2 bakkar af birkitrjám niður.




