Föstudagspóstur 1
Sæl öll kæru foreldrar.
Skólastarfið fer vel af stað, enda starfsfólkið hér vel skipulagt og kann sitt fag. Nemendur grunnskólans byrjuðu námið sitt einbeittir og til í haustið.
Ég vil byrja á að þakka hlýjar móttökur og traust, ekki síst fulltrúum foreldrafélagsins. Það er góður grunnur fyrir haustið. Þrátt fyrir mannauð getum við í Tálknafjarðarskóla þegið fleiri faglegar hendur, til dæmis gott fólk til að kenna raungreinar / náttúrugreinar, stærðfræði, tungumál. Þetta þýðir þó ekki að við ætlum ekki að standa vörð um þessi grunnfög íslenskrar aðalnámskrár til þess að undirbúa nemendur fyrir nám í framhaldsskóla að eigin vali eins og kostur er og við erum skipulögð upp í topp miðað við aðstæður.
Hér á eftir koma nokkrar myndir úr grunnskólanum. Takk Lára og Helga Birna fyrir þær.
Vinsamlega smellið á hlekkinn til að lesa alla fréttina og sjá myndirnar.