Vinabær

Áherslur í leik­skóla­starfi Vina­bæjar

Vinabær leggur mikla áherslu á velferð nemenda og að mæta hverjum og einum nemenda þar sem hann er staddur ásamt því að nýta styrk­leika hvers og eins þannig að allir geti notið sín eins og þeir eru.

Í Vinabæ eru 13 nemendur skóla­árið 2023 – 2024. Leik­skólinn opnar kl. 7.45 og lýkur kl. 16.00 nema á föstu­dögum þá lokar leik­skólinn kl:14:45. Leik­skóla­nem­endur frá 3 ára aldri byrja á því að fara í jóga­stund með grunn­skóla­nem­endum klukkan 8.10 og fara síðan í hefð­bundið starf að því loknu. Elstu nemendur leik­skólans fara í viku­lega tíma með yngsta stigi grunn­skólans þar sem þeir fara í samþættar náms­greinar, forritun/vísindi og list­greinar. Yngri nemendur eru í hópa­starfi en taka einnig reglu­lega þátt í samstarfi við grunn­skóla­deildina.

Starf Vina­bæjar hefur verið í mótun út frá skóla­stefnu sveit­ar­fé­lagsins og í haust er stefnt að því að vera með full­búna stefnu fyrir leik­skóla­starfið í heild sinni. Rýmið sem er til staðar fyrir leik­skóla­börnin er ágæt­lega stórt miðað við fjölda nemenda og er stöðugt unnið að því að bæta aðstöðu barn­anna með tilliti til yngri nemenda sérstak­lega. Sumarið 2020 var unnið að lagfær­ingu á leik­skólalóð og hefur nú verið sett upp girðing utan um leik­skóla­leik­svæðið ásamt nýjum leik­tækjum. Veturinn 2021 voru keypt ný húsgögn og leik­föng til að mæta þörfum yngri barn­anna sérstak­lega. Sumarið 2023 var teppa­lagt rýmið sem ætlað er yngstu nemendum leik­skólans.