Almyrkvi á sólu 2026

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáan­legur á vest­an­verðu Íslandi, þar á meðal í Vest­ur­byggð, og varir hann lengst á Látra­bjargi. Sveit­ar­fé­lagið leggur áherslu á öryggi og góða upplifun íbúa og gesta. Á þessari síðu má finna helstu upplýs­ingar um almyrkvann og undir­búning sveit­ar­fé­lagsins. Gestir eru hvattir til að skipu­leggja ferðir tíman­lega og dvelja í lengri tíma á svæðinu til að létta á umferðarálagi.

Menningar- og ferðamálafulltrúi

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335

Almennt

Hvað er almyrkvi?

Almyrkvi á sér stað þegar tunglið gengur beint milli sólar og jarðar og skyggir alveg á sólina í örfáar mínútur. Á þeim tíma verður dimmt og hita­stig getur jafnvel lækkað lítil­lega. Fyrir og eftir almyrkva sést deild­ar­myrkvi, það er þegar tunglið skyggir á hluta sólar.

Almyrkvar eru sjald­gæfir og sjást aðeins frá mjóu belti á jörð­inni. Almyrkvi hefur ekki sést á Íslandi síðan 1954.

Hvenær má sjá almyrkvann?

Almyrkvinn verður seinnipartinn miðviku­daginn 12. ágúst 2026. Hann verður sjáan­legur um allt sveit­ar­fé­lagið en tíma­setn­ingar og lengd eru breyti­legar eftir stað­setn­ingu.

Á heima­síð­unni Solmyrkvi2026.is má smella á stað á korti og sjá nákvæm­lega hvenær deild­ar­myrkvi hefst, hvenær almyrkvi hefst og lýkur og hvenær deild­ar­myrkva lýkur aftur. Þar má einnig sjá kort yfir skugga og svæði þar sem almyrkvi verður ekki sjáan­legur.

Á Látra­bjargi varir almyrkvinn í tvær mínútur og þrettán sekúndur.

 

StaðurDeildarmyrkvi hefstAlmyrkvi hefstAlmyrkva lýkurDeildarmyrkva lýkur

Látrabjarg

16:43:39

17:44:27

17:46:40

18:44:54

Patreksfjörður

16:43:43

17:44:29

17:46:33

18:44:46

Tálknafjörður

16:43:45

17:44:31

17:46:30

18:44:43

Bíldudalur

16:43:45

17:44:31

17:46:24

18:44:38


Sólmyrkvagleraugu

Þarf ég sólmyrkv­agler­augu?

Sólmyrkv­agler­augun eru úr silf­ur­húð­aðri filmu sem síar skað­lega geisla og hleypir aðeins örlitlu ljósi í gegn. Hættu­legt er að horfa beint á sólina án slíkra gler­augna þar sem innrauðir og útfjólu­bláir geislar sólar­innar geta valdið varan­legum augnskaða. Venjuleg sólgler­augu duga ekki þar sem þau sía ekki skað­lega geislun nægi­lega vel.

Gler­augun þarf að hafa á sér allan tímann sem deild­ar­myrkvinn varir, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvinn sjálfur stendur, þegar sólin er alveg hulin, má taka þau af.

Land­læknir hefur gefið út leið­bein­ingar um verndun augna þegar fylgst er með sólmyrkva. Þær má lesa hér.

Hvar fæ ég sólmyrkv­agler­augu?

Sveit­ar­fé­lagið tók þátt í sameig­in­legri pöntun sveit­ar­fé­lag­anna á Vest­fjörðum á sólmyrkv­agler­augum. Íbúar í Vest­ur­byggð geta sótt sér gler­augu í íþróttamið­stöðv­arnar:

  • Íþróttamið­stöðina á Tálkna­firði, Sveins­eyri
  • Bröttu­hlíð á Patreks­firði, Aðalstræti 55
  • Byltu á Bíldudal, Hafn­ar­braut 3

Þótt nóg sé til af gler­augum fyrir alla íbúa eru þeir beðnir um að taka aðeins ein gler­augu á hvern íbúa heim­il­isins, svo tryggt sé að allir fái.

 


Tjaldsvæði

Get ég bókað pláss á tjald­svæðum?

Nei. Á tjald­svæðum Vest­ur­byggðar gildir megin­reglan fyrstur kemur, fyrstur fær, einnig í tengslum við sólmyrkvann.

Til að mæta auknum fjölda gesta verða öll tjald­svæði sveit­ar­fé­lagsins stækkuð tíma­bundið:

  • Patreks­fjörður: fyrir neðan Félags­heimili Patreks­fjarðar og upp á Wembley.
  • Tálkna­fjörður: á túnið fyrir neðan kirkjuna.
  • Bíldu­dalur: á svæðið við Völu­völl.

Við gerum ráð fyrir að allir sem vilja tjalda komist fyrir, en mælum með að gestir mæti tíman­lega til að tryggja sér gott pláss. Rekstr­ar­að­ilar tjald­svæða mun leið­beina gestum á svæði.

Rafmagns­staurum á tjald­svæðum hefur verið fjölgað í tengslum við viðburðinn. Athugið að ekki er þó hægt að tryggja að allir fái rafmagn­steng­ingu þar sem fjöldi rafmagns­stæða er takmark­aður.

Nánari upplýs­ingar veita rekstr­ar­að­ilar tjald­svæð­anna.


Umferðarstýring

Verður umferð­ar­stýring vegna sólmyrkvans?

Já. Til að tryggja umferð­ar­flæði og greiða leið viðbragðs­aðila verður sérstök umferð­ar­stýring á svæðinu þann 12. ágúst:

  • Örlygs­hafn­ar­vegur (612): Einstefna frá kl. 08:00. Á Örlygs­hafn­ar­vegi (612) að Látra­bjargi mega aðeins rútur með allt að 19 farþega aka.
  • Rauðasands­vegur (614): Einstefna frá kl. 08:00. Rútum er óheimilt að keyra um veginn.
  • Lögregla verður með eftirlit á svæðinu frá kl. 23:00 þann 11. ágúst og getur takmarkað aðgengi ef aðstæður krefjast.
  • Óheimilt er að leggja ökutækjum á vegum eða vegöxlum. Ökutæki sem lagt er ólög­lega verða fjar­lægð á kostnað eigenda.

Við biðjum gesti um að fylgja leið­bein­ingum lögreglu og annarra viðbragðs­aðila og gefa sér góðan tíma til ferða­laga.

Hvað með umferð­ar­stýr­ingu á öðrum svæðum?

Nei. Ekki er gert ráð fyrir sérstakri umferð­ar­stýr­ingu á öðrum svæðum í Vest­ur­byggð. Gestir eru þó beðnir um að fylgja almennum umferð­ar­reglum og virða fyrir­mæli lögreglu og viðbragðs­aðila ef þörf krefur.

 



Hvað má búast við mörgum gestum?

Ómögu­legt er að leggja mat á nákvæman fjölda gesta. Þar spila nokkrir þættir inn í, svo sem óvissa um veður- og skýja­huluspá, fjölda gesta á tjald­svæðum, fjölda gesta í heimag­ist­ingu og svo fram­vegis.


Góð ráð til ferðafólks

Mætum snemma og dveljum lengur

Fólk sem hyggst ferðast til að sjá almyrkvann er hvatt til að mæta snemma og dvelja lengur. Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkv­anum lýkur má draga úr umferð­ar­töfum og stuðla að öruggari umferð.

Verum vel undir­búin

Verið vel undir­búin fyrir ferða­lagið og kynnið ykkur ferða­leið og áfanga­stað. Takið með nauð­synleg lyf, mat, vatn og viðeig­andi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferða­tíma. Gætið þess að vera með nægt eldsneyti eða hleðslu á bifreiðum. Gætið að hrein­læti, að matvæli sé geymd við full­nægj­andi aðstæður

Höfum augun á veginum

Munum að fara varlega og vera ekki með hugann við farsíma heldur með augun á veginum. Virðum öll hraða­mörk og spennum bílbeltin.

Sýnum þolin­mæði

Sýnum þolin­mæði þegar tíma­bundnar biðraðir myndast. Fylgjum leið­bein­ingum yfir­valda og viðbragðs­aðila ef upp koma erfiðar aðstæður. Styðj­umst við opin­berar upplýs­inga­veitur fyrir nýjustu upplýs­ingar.


Ljósmengun

Íbúar og fyrir­tæki eru hvött til að slökkva á ljósum, þar á meðan þeim sem stjórnast af sjálf­krafa ljós­skynj­urum, til að lágmarka ljós­mengun og tryggja góða upplifun fyrir öll.


Gagnlegir hlekkir