Farsæld barna

Lög um samþætt­ingu þjón­ustu í þágu farsældar barna, einnig þekkt sem farsæld­arlög, er ætlað að tryggja snemm­tækan stuðning og tryggja samvinnu allra sem koma að velferð barna, fækka alvar­legum málum og bæta þjón­ustu við börn og fjöl­skyldur. Lögin ná til allrar þjón­ustu sem veitt er innan skóla- og heil­brigðis­kerf­isins, auk félags­þjón­ustu og lögreglu.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs

MAS

magnusarnar@vesturbyggd.is/+354 450 2300

Aðilar sem koma að málefnum barna bera ábyrgð á að:

  • Fylgjast með velferð og farsæld barna og foreldra, og meta hvort þörf sé á þjón­ustu.
  • Bregðast við þegar þörf er á þjón­ustu, á skil­virkan hátt.
  • Hafa samráð sín á milli til að tryggja samfellu og samþætt­ingu þjón­ustu í þágu velferðar og farsældar barna og foreldra.

Stigskipting þjónustunnar

  1. Fyrsta stig: Grunn­þjón­usta sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Markmið að styðja við farsæld barns.
  2. Annað stig: Úrræði þar sem veittur er einstak­lings­bundinn og mark­vissari stuðn­ingur. Markmið að tryggja farsæld barns.
  3. Þriðja stig: Úrræði þar sem veittur er einstak­lings­bundinn og sérhæfðari stuðn­ingur. Markmið að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin.

Tengiliður

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið eftir því sem þörf krefur. Á meðgöngu og á ungbarna­skeiði er tengi­liður barns starfs­maður heilsu­gæslu, í leik- grunn- eða fram­halds­skóla er starfs­maður skólans. Ungmenni sem ekki fara í fram­halds­skóla eða börn sem á einhvern hátt falla á milli ofan­greindra þjón­ustu­kerfa hafa aðgang að tengilið hjá félags­þjón­ustu sveitar­félags.
Tengi­liður hefur viðeig­andi þekk­ingu til að geta verið foreldrum og barni innan handar. Hann ráðleggur þeim og aðstoðar við að rata í gegnum kerfið og sækja þjón­ustu við hæfi.

Tengi­liður leik­skóla

Tengi­liður grunn­skóla

Tengi­liður fram­halds­skóla

Tengi­liður félags­þjón­ustu

Tengi­liður Hvest


Málstjóri

Ef barn þarf fjöl­þætta þjón­ustu á öðru og/eða þriðja stigi er tilnefndur mál­stjóri. Málstjórar eru að jafnaði starfs­fólk félags­­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga. Hlut­verk málstjóra er meðal annars að veita ráðgjöf og upplýs­ingar um þjón­ustu, bera ábyrgð á gerð stuðn­ings­áætl­unar og stýra stuðn­ings­teymi.
Málstjóri hefur hags­muni barnsins ávallt að leið­ar­ljósi og rækir hlut­verk sitt í samráði við foreldra og barn.