Um heima­stjórnir og kosn­ingar til þeirra

Samhliða kosn­ingum til sveit­ar­stjórnar í Vest­ur­byggðar þann 16. maí næst­kom­andi verða kosnir full­trúar í heima­stjórnir. Hægt er að kjósa um alla íbúa hvers svæðis.

Hvað eru heimastjórnir?

Heima­stjórnir eru fasta­nefndir innan Vest­ur­byggðar sem starfa í umboði sveit­ar­stjórnar. Mark­miðið með heima­stjórnum er að heima­menn hafi aðkomu að ákvörð­unum sem varða nærum­hverfi sitt og geta ályktað um málefni sem snýr að viðkom­andi byggð­ar­lagi og komið málum á dagskrá bæjar­stjórnar. Í hverri heima­stjórn eru þrír full­trúar, tveir sem kosnir eru sérstak­lega samhliða sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og einn bæjar­full­trúi. Kjörgengir til heima­stjórna eru allir íbúar á kjör­skrá Vest­ur­byggðar, samkvæmt kjör­skrá á sínu svæði.


Hvernig fer kosningin fram?

Kosið verður í heima­stjórnir sama dag og kosið verður til sveit­ar­stjórnar og eru tveir full­trúar kosnir á hverjum stað. Heima­stjórn­irnar eru fjórar:

  • Heima­stjórn Arnar­fjarðar
  • Heima­stjórn Tálkna­fjarðar
  • Heima­stjórn Patreks­fjarðar
  • Heima­stjórn fyrrum Barða­strandar- og Rauðasands­hrepps

Allir íbúar hvers svæðis eru í fram­boði og kýs hver íbúi einn einstak­ling á því svæði sem hann býr. Gerð er sérstök kjör­skrá fyrir hverja heima­stjórn og hefst kosning til heima­stjórna frá og með 24. apríl. Hver kjós­andi kýs einn aðal­mann í heima­stjórn í beinni kosn­ingu og skrifar á kjör­seðil fullt nafn og heim­il­is­fang þess sem hann kýs. Þeir tveir sem fá flest atkvæði á hverju svæði eru kjörnir aðal­menn og munu sitja í heima­stjórn fyrir sitt svæði næstu fjögur árin eða þar til kosið verður næst til sveit­ar­stjórnar. Næstu tveir þar á eftir eru kjörnir vara­menn í samræmi við fjölda atkvæða.

Íbúum sem gefa sérstak­lega kost á sér í heima­stjórnir hafa kost á að kynna sig á heima­síðu sveit­ar­fé­lagsins með því að senda tölvu­póst á ritstjorn@vest­ur­byggd.is fyrir kl. 12:00 miðviku­daginn 13. maí. Kynn­ingar verða birtar jafnóðum og þær berast hér.

Íbúar sem verða 16 ára á kjördag og fyrr mega kjósa til heima­stjórna en kjörgengir til setu í heima­stjórn eru allir íbúar sveit­ar­fé­lag­anna 18 ára og eldri sem eru orðnir 18 ára á kjördag 16. maí 2026 og með lögheimili á starfs­svæði viðkom­andi heima­stjórnar.


Atkvæðagreiðsla fyrir kjördag

Þar sem aðrar reglur gilda um kosn­ingu í heima­stjórn sem telst til íbúa­kosn­ingar en kosn­ingu í sveit­ar­stjórn þá verður hægt að greiða atkvæði til heima­stjórna í í ráðhúsi Vest­ur­byggðar að Aðalstræti 75 á Patreks­firði en ekki hjá sýslu­manni eins og gildir um hefð­bundnar kosn­ingar. Hægt er að kjósa til heima­stjórna í Ráðhúsi Vest­ur­byggðar fram að kjör­degi en á kjördag er kosið í öllum kjör­deildum sveit­ar­fé­lag­anna samhliða sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Jafn­framt má óska eftir að fá að greiða atkvæði til heima­stjórnar í póst­kosn­ingu þar sem kjós­andi fær sendan atkvæða­seðil, ýmist í pósti eða rafrænt samkvæmt reglum þar um.  Athugið að Rauð­send­ingar kjósa til heima­stjórnar á Patreks­firði líkt og í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.