Framboð til heimastjórna
Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði til heimastjórnar og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr. Íbúum sem hafa áhuga á því að sitja í heimastjórn og vilja gefa sérstaklega kost á sér býðst að kynna sig og sín áherslumál á þessari síðu.
Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta að hámarki 200 orð á netfangið ritstjorn@vesturbyggd.is. Þar þarf að koma fram fullt nafn og heimilisfang frambjóðanda. Kynningar verða birtar jafnóðum og þær berast, tekið verður við kynningum til miðvikudagsins 13. maí 2026 kl. 12:00.
Heimastjórn Arnarfjarðar
Freyja Ragnarsdóttir Pedersen
Dalbraut 15, 465 Bíldudal
Kæru Arnfirðingar! Ég ætla að gefa kost á mér í heimastjórn Arnarfjarðar.
Ég vil vera sterk rödd fyrir okkar samfélag og tryggja að málefni Arnarfjarðar fái þá athygli sem þau eiga skilið hjá bæjaryfirvöldum. Heimastjórn á að hlusta á íbúa og fylgja málum markvisst eftir, og þar vil ég leggja mitt af mörkum. Ég er virkur þátttakandi í samfélaginu og tel mig vera góðan fulltrúa í þetta verkefni.
Ég er náttúru- og umhverfisfræðingur að mennt og starfa við rannsóknir hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Á kjörtímabilinu sem er að líða hef ég starfað í umhverfis- og loftslagsráði, skipulags- og framkvæmdaráði, ásamt því að vera fyrsti varamaður í bæjarstjórn og fjölskylduráði. Sú reynsla hefur gefið mér góða innsýn í störf sveitarfélagsins og mun nýtast vel í heimastjórn.
Ég bý á Bíldudal og hér er frábært að búa. Það skiptir mig máli að halda samfélaginu okkar lifandi og blómlegu. Ég er gift Matthíasi Karli Guðmundssyni og saman höfum við undanfarin ár unnið að því að laga og gera Kaldabakka, heimili okkar, að prýði fyrir þorpið.
Sem liður í minni kosningabaráttu vil ég bjóða ykkur Arnfirðingum í kaffi og spjall á pallinum á Kaldabakka næsta góða sólardag. Ég læt ykkur vita á síðu íbúasamtakanna!

Heimastjórn fyrrum Barðastrandar- og Rauðasandshrepps
Heimastjórn Patreksfjarðar
Gunnar Sean Eggertsson
Hjöllum 13, 450 Patreksfirði
Kæru Patreksfirðingar
Ég gef kost á mér til setu í heimastjórn Patreksfjarðar.
Ég er fæddur árið 1983 og hef mest alla mína ævi búið á Patreksfirði. Ég er giftur Lilju Sigurðardóttur hjúkrunarfræðingi og ljósmóður og eigum við saman þrjú börn. Ég er vélfræðingur að mennt og rek Vélaverkstæði Patreksfjarðar. Ég starfa jafnframt sem varðstjóri í slökkviliði Patreksfjarðar og sit í stjórn sóknarnefndar Patreksfjarðarkirkju. Ég tek þátt í ýmsum félagsstörfum, svosem Lions og björgunarsveitinni Blakk . Í dag sit ég í heimstjórn Patreksfjarðar og hef mikinn áhuga á að sitja annað kjörtímabil, áður hef ég setið bæði sem aðal og varamaður í skipulags og byggingarnefnd. Ég brenn fyrir samfélaginu sem ég bý í og set mig vel inn í þau mál sem eru í gangi hverju sinni. Ég tel að mínir kraftar muni nýtast í heimastjórn Patreksfjarðar þar sem reynsla mín og þekking á samfélaginu muni koma að góðum notum og vonast ég eftir ykkar stuðningi.

Heimastjórn Tálknafjarðar
Jón Aron Benediktsson
Miðtúni 13, 460 Tálknafirði
Kæru íbúar Tálknafjarðar og nær sveita,
Jón Aron Benediktsson heiti ég og mig langar að bjóða mig aftur fram í heimastjórn núna á komandi kjörtímabili frá og með 16.maí.2026. Ég hef starfað hjá Lás ehf., undanfarin 6 ár, og er í flestum störfum þar en þó aðalega vélavinnu og bílstjóri. Einnig starfa ég í slökkviliði Tálknafjarðar og er sjálfboðaliði í Björgunarsveitinni Tálkna.
Ég hef búið á Tálknafirði síðan 2020 en samt verið hér á Sunnanverðum Vestfjörðum meiri hluta ævinnar. Ég er með miklar vonir um að framtíðin hér á svæðinu haldi áfram að dafna og eigi eftir að fjölga fólki þannig það verði hægt að byggja stærra og flottara samfélag. Ég hef mikinn áhuga á að bæta okkar samfélag
Með bestu kveðjum
Jón Aron Benediktsson.

Jónas Snæbjörnsson
Túngötu 28, 465 Tálknafirði
Kæru Tálknfirðingar,
Ég gef kost á mér í heimastjórn Tálknafjarðar
Ég bý í Tálknafirði ásamt eiginkonu minni, Heather Sosbee, og börnum okkar Noah og Willow. Hér eigum við heimili og hér vil ég leggja mitt af mörkum til að samfélagið okkar verði áfram góður staður til að búa á, ala upp börn og horfa til framtíðar með bjartsýni.
Ég starfa sem yfirmaður fóðurdeildar hjá Arnarlaxi og hef um árabil tekið virkan þátt í samfélagsmálum í Tálknafirði. Ég hef komið að verkefnum tengdum Pollinum, útivist og nærumhverfi og tel mig hafa góða innsýn í það sem skiptir íbúa máli í daglegu lífi.
Það hefur verið góð og lærdómsrík reynsla að sitja í heimastjórn síðustu tvö ár á sama tíma og Tálknafjörður hefur verið að aðlagast nýjum veruleika innan Vesturbyggðar eftir sameininguna. Ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til að sú vinna fari fram af metnaði, festu og ábyrgð.
Ég vil leggja áherslu á sterka innviði, gott og öruggt umhverfi fyrir börn og fjölskyldur og áframhaldandi uppbyggingu sem styrkir Tálknafjörð til framtíðar.

Nancy Rut Helgadóttir
Túngötu 27, 460 Tálknafirði
Kæru íbúar,
Ég gef kost á mér til setu í heimastjórn Tálknafjarðar.
Ég er fædd og uppalin á Tálknafirði og hef því djúpar rætur hér í samfélaginu okkar.
Ég er líftæknifræðingur að mennt og starfa í dag sem sérfræðingur í Fiskeldisdeild Matvælastofnunar. Í því starfi hef ég öðlast góða innsýn í mikilvægi faglegra vinnubragða, ábyrgðar og langtímahugsunar þegar kemur að nýtingu auðlinda og uppbyggingu atvinnulífs.
Samhliða því hef ég tekið virkan þátt í félagsmálum. Ég hef setið í stjórn Kvenfélagsins Hörpu frá 2017, fyrst sem varamaður og síðar sem formaður. Þá sat ég einnig sem varamaður í sveitarstjórn Tálknafjarðar á árunum 2018–2022.
Ég brenn fyrir málefnum svæðisins og vil leggja mitt af mörkum til að efla Tálknafjörð enn frekar – bæði sem öflugt samfélag og sem góðan stað til að búa og starfa á. Ég trúi því að við náum bestum árangri þegar við vinnum saman, með skýr markmið og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum.
Með trausti ykkar vil ég halda áfram að leggja mitt af mörkum til að samfélagið okkar dafni og styrkist til framtíðar.
Kærar þakkir fyrir.
Nancy Rut Helgadóttir

Thelma Dögg Theodórsdóttir
Túngata 39, 460 Tálknafirði
Kæru Tálknfirðingar,
Eftir að hafa legið undir feldi, hef ég ákveðið að bjóða mig fram í heimastjórn Tálknafjarðar.
Ég er gift og á tvo stráka. Ég flutti vestur þegar frumburðurinn minn var eins árs. Mig langaði að ala upp börnin mín í umhverfi þar sem samheldni, frelsi og nálægðin við náttúruna eru ómissandi hluti af daglegu lífi.
Ég er lögfræðingur að mennt og starfa sem fulltrúi sýslumanns á Vestfjörðum. Helstu áherslur mínar snúa að skólamálum, velferð fjölskyldna ásamt að efla atvinnulífið. Ég tel að þetta séu grunnstoðir sterks samfélags. Ég var persónufulltrúi Tálknafjarðarhrepps 2020-2024 og varamaður kjörstjórnar 2022-2024. Ég er varamaður í yfirkjörstjórn og fjölskylduráðs. Ég er sömuleiðis virki í félagsstörfum á svæðinu, bæði í kvenfélaginu Hörpu og Björgunarsveitinni Tálkna.
Með mína þekkingu og reynslu, þá tel ég geta lagt mitt að mörkum fyrir samfélagið okkar.
