Almyrkvi á sólu - pistill bæjarstjóra
Það styttist óðum í þann 12. ágúst þegar eitt merkilegasta náttúrufyrirbæri sem við eigum eftir að upplifa á þessari öld verður að veruleika. Látrabjarg er sá staður á landi í heiminum þar sem almyrkvinn 12. ágúst 2026 varir lengst. Vesturbyggð er því kjörstaðsetning til að fylgjast með almyrkva á sólu og það eru sannkölluð forréttindi að búa þar sem alskuggi tunglsins mun ganga yfir.
Skrifað: 7. ágúst 2026
Við höfum lengi vitað að þessi dagur myndi verða sérstakur og undanfarna mánuði hafa fjölmargir aðilar unnið saman að undirbúningi. Sveitarfélagið, lögreglan, Vegagerðin, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, ferðaþjónustan, landeigendur og fjölmargir aðrir hafa lagt sitt af mörkum til að tryggja að bæði íbúar og gestir geti notið dagsins á sem öruggastan hátt.
Það er mikilvægt að hafa í huga að við vitum ekki nákvæmlega hversu margir munu leggja leið sína til Vesturbyggðar. Það ræðst að miklu leyti af veður- og skýjahuluspánni síðustu dagana fyrir myrkvann. Þeir sem fylgjast með svona viðburðum elta gjarnan besta veðrið og því geta aðstæður breyst hratt. Á landsvísu er gert ráð fyrir um 70–75 þúsund erlendum ferðamönnum á landinu á þessum tíma og því er ljóst að Vestfirðir munu taka á móti verulegum fjölda gesta.
Við höfum því undirbúið okkur fyrir mismunandi sviðsmyndir. Í raun gæti fjöldinn verið allt frá nokkrum þúsundum upp í tíu þúsund gesti eða jafnvel fleiri ef veðrið verður sérstaklega hagstætt hér miðað við önnur landsvæði.
Við höfum lagt ríka áherslu á að styrkja grunnþjónustuna. Öll tjaldsvæði sveitarfélagsins hafa verið stækkuð, bætt hefur verið við rafmagnsaðstöðu þar sem þess hefur verið þörf, komið verður upp fleiri salernum og ruslaílátum og skilgreind hafa verið sérstök söfnunarsvæði þar sem fólk getur komið saman til að njóta myrkvans með góðri grunnþjónustu.
Þau svæði sem skilgreind hafa verið sem söfnunarstaðir eru:
- Planið við tjaldsvæðið/félagsheimilð á Patreksfirði
- Planið við sundlaugina/tjaldsvæðið á Tálknafirði
- Túnið fyrir neðan Baldurshaga á Bíldudal
- Breiðavík
Þessi svæði eru jafnframt hugsuð sem öryggis- og fjöldahjálparsvæði ef á þarf að halda.
Við höfum einnig lagt áherslu á öryggi. Allir íbúar fá sólmyrkvagleraugu sem uppfylla viðurkennda öryggisstaðla og mikilvægt er að muna að venjuleg sólgleraugu duga ekki þegar horft er á sólina. Gleraugun eiga að vera notuð allan tímann meðan deildarmyrkvinn stendur yfir en aðeins má taka þau af í sjálfum almyrkvanum þegar sólin er fullkomlega hulin. Ég hvet þá íbúa sem ekki hafa nú þegar gert það, að sækja gleraugun í íþróttamiðstöðvarnar.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um almyrkvann á eftirfarandi síðum, en síðurnar eru í stöðgri uppfærslu og upplýsingar settar þar inn þegar þær liggja fyrir.
Mig langar sérstaklega að hvetja íbúa Vesturbyggðar til að taka þátt í þessum degi. Við eigum eftir að upplifa náttúruviðburð sem fáar kynslóðir fá að sjá. Ég veit að þjónustuaðilar eru í óða önn að undirbúa sig og hef ég fulla trú á því að þeir muni taka á móti gestum af þeirri fagmennsku og gestrisni sem Vesturbyggð er þekkt fyrir.
Við skulum njóta dagsins, sýna þolinmæði ef álag verður meira en venjulega og muna að við erum öll hluti af því að skapa góða upplifun fyrir bæði íbúa og gesti.
