Dagforeldrar á Patreksfirði
Daggæslu í heimahúsum er sinnt af sjálfstætt starfandi dagforeldrum sem hafa formlegt leyfi yfirvalda til þess að gæta barna í heimhúsum. Leyfi eru veitt samkvæmt gildandi reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum og reglum Vesturbyggðar sem nálgast má hér fyrir neðan en fræðslu- og æskulýðsráð er búið að samþykkja tímabundnar reglur fyrir dagforeldra á Patreksfirði.
Reglur Vesturbyggðar um niðurgreiðslur til dagforeldra getur hafist frá þeim tíma sem sameiginlegu fæðingarorlofi foreldra lýkur. Niðurgreiðslurnar miðast við að barn sé að lágmarki 4 klst. í vistun á dag.
Samkvæmt reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005 þurfa þeir aðilar sem ætla að starfa við daggæslu barna í heimahúsum á Patreksfirði að sækja um starfsleyfi til velferðarráðs.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2023
Dagforeldrar sem hyggjast starfa á Patreksfirði samkæmt þessum tímabundnu reglum stendur til boða aðstaða á Patreksfirði án endurgjalds. Fyrirhuguð aðstaða fyrir dagforelra verður í Safnaðarheimilinu. Sveitarfélagið styrkir viðkomandi dagforeldra til að sækja nauðsynleg námskeið og dagforeldrar geta sótt um stuðningsstyrk til að standa undir tilteknum lágmarkstekjum skv. reglum Vesturbyggðar.
Fólk er hvatt til að nýta sér þetta atvinnutækifæri.
Frekari upplýsingar gefur sviðsstjóri fjölskyldusviðs.