Hoppa yfir valmynd

Dagur sólmyrkvans runninn upp

Í dag, miðviku­daginn 12. ágúst, verður almyrkvi á sólu sem mun vara lengst á Látra­bjargi.


Skrifað: 12. ágúst 2026

Sveitarfélagið hefur tekið saman allar helstu upplýsingar í tenglum við atburðinn á sérstakri undirsíðu heimasíðunnar.

Rétt er að minna á eftirfarandi:

  • Hættu­legt er að horfa beint á sólina án sólmyrkvagleraugna. Vesturbyggð gefur öllum íbúum sólmyrkvagleraugu, þau má sækja í íþróttamiðstöðvar.
  • Veðurstofan hefur opnað sérstaka síðu um sólmyrkvann, þar er hægt að fylgjast með veðurspám.
  • Einstefna á Örlygshafnarvegi og Rauðasandsvegi er nú í gildi. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Vegagerðarinnar.
  • Náttúruverndarstofnun hefur umsjón með Látrabjargi. Nánari upplýsingar um viðbúnað þeirra má lesa á heimasíðu stofnunarinnar.
  • Hægt er að fylgjast með stöðuuppfærslum lögreglunnar á Vestfjörðum á Facebooksíðu hennar.
  • Símanúmer Neyðarlínunnar er 112. Þá er einnig gott að vista varanúmer Neyðarlínunnar, 599 0112, sem er aðeins ætlað til notkunar ef ekki næst í 112.
  • Vesturbyggð hefur skilgreint þrjú söfnunarsvæði: Við félagsheimili Patreksfjarðar, félagsheimili Tálknafjarðar og félagsheimilið Baldurshaga á Bíldudal. Þar verður aðgengi að grunnþjónustu, svo sem salernum.

Það eru forréttindi að búa á almyrkvaslóð, njótum þess að verða vitni að slíku náttúrufyrirbæri. Góða skemmtun.

StaðurDeildarmyrkvi hefstAlmyrkvi hefstAlmyrkva lýkurDeildarmyrkva lýkur

Látrabjarg

16:43:39

17:44:27

17:46:40

18:44:54

Patreksfjörður

16:43:43

17:44:29

17:46:33

18:44:46

Tálknafjörður

16:43:45

17:44:31

17:46:30

18:44:43

Bíldudalur

16:43:45

17:44:31

17:46:24

18:44:38


Menningar- og ferðamálafulltrúi

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335