Hoppa yfir valmynd

Forstöðu­maður félags­heim­ilis Patreks­fjarðar

Sveit­ar­fé­lagið auglýsir starf forstöðu­manns félags­heim­ilis Patreks­fjarðar laust til umsóknar. Starfs­hlut­fall er 50%.


Skrifað: 9. febrúar 2026

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í maí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur félagsheimilisins
  • Umsjón með húsnæðinu og sér til þess að smávægilegu viðhaldi sé sinnt
  • Umsjón með bókunarkerfi
  • Umsjón með leigu félagsheimilisins, þ.á.m. samskipti og aðstoð við leigjendur
  • Þrif á húsnæði
  • Innkaup
  • Samþykktir reikninga
  • Halda húsnæði og umhverfi snyrtilegu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Skipulagshæfni
  • Sjálfstæði
  • Frumkvæði
  • Jákvæðni
  • Ábyrgð
  • Reynsla af ræstistörfum er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar 2026

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Valgerður María Þorsteinsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi. Umsóknir skulu berast á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335