Fundi um svæðisskipulag frestað
Fyrirhuguðum fundi um kynningartillögu Svæðisskipulags Vestfjarða, sem halda átti í Félagsheimilinu Patreksfirði á morgun fimmtudag 26. febrúar kl. 17:00, er frestað til þriðjudagsins 10. mars kl. 17:00.
Fundarstaður er hinn sami, það er Félagsheimilið Patreksfirði.
Ástæða þessara frestunar er slæmt veðurútlit með verulegum samgöngutruflunum gangi veðurspár eftir.