Hönnunarsamkeppni um nýtt byggðamerki
Vesturbyggð, sveitarfélag sem varð til 19. maí 2024 með sameiningu Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps, efnir til hönnunarsamkeppni um nýtt byggðamerki. Tákn byggðamerkisins skal hafa tilvísun í áberandi einkenni í náttúru sveitarfélagsins, sögu þess eða ímynd.
Verðlaunaupphæð er kr. 600.000 fyrir þá tillögu sem verður fyrir valinu. Sérstök dómnefnd hefur verið skipuð til að meta tillögur sem berast. Í dómnefnd eru Birta Ósmann Þórhallsdóttir, Greipur Gíslason og Guðmundur Oddur Magnússon. Dómnefnd áskilur sér þó rétt til að hafna öllum tillögum.
Keppnislýsing
Útfærsla tillagna
Hverri tillögu skal skilað í tveimur útfærslum, það er í lit og svart/hvítu.
Tillögum skal skilað á tveimur formum, annars vegar á tölvutæku vektorformi og hins vegar á A4 örkum sem vistaðar eru sem PDF skrár:
- Tölvutækt vektorform: Merkinu skal skilað í sérstakri vektorskrá, t.d. .AI, .EPS, .SVG eða vektor-PDF (útgefið úr viðeigandi vektorformi).
- A4 framsetning: A4 arkirnar skulu vistaðar sem PDF-skrár. Mikilvægt er að tryggja að þar sé um hreina vektorhönnun að ræða ef þær eiga að nýtast sem slíkar.
Skil á tillögum
Þátttakendur skulu safna öllum skjölum saman í ZIP-möppu, merktri með 5 stafa tölu sem höfundur velur. ZIP-mappan skal innihalda:
- Tvær A4 framsetningar í PDF, ein í lit og ein í svart/hvítu.
- Vektorútgáfu merkisins.
- PDF skjal með nafni þátttakanda, netfangi hans og lýsingu á tillögunni, merkingu hennar og meginhugmynd.
Því næst skal ZIP-möppunni hlaðið upp í gegnum Dropbox, sjá hlekk neðst í fréttinni.
Menningar- og ferðamálafulltrúi, sem jafnframt er verkefnastjóri og keppnisritari keppninnar, tekur við öllum innsendingum og heldur utan um skráningu þátttakenda. Hann sér um að nafnleysa innsendingar áður en þær eru lagðar fyrir dómnefnd, sem fær eingöngu ópersónugreinanlegar útgáfur. Þannig er sjálfstæði dómnefndar og óháð mat hennar tryggt.
Vinsamlegast athugið
Skilyrði er að merkið hafi skjaldarlögun og sé í samræmi við meginreglur skjaldarmerkjafræðinnar, sbr. 4. og 5. grein reglugerðar um byggðamerki nr. 112/1999. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um gerð og skráningu byggðamerkja má finna hjá Hugverkastofunni.
Merki sem er vistað sem mynd (t.d. JPG eða PNG) í PDF skjali telst ekki vektor. Ef vafi leikur á hvort merkið uppfylli kröfur, má nota forrit eins og Adobe Illustrator, Affinity Designer eða Inkscape til að tryggja vektorfærni skráarinnar.
Frestur til að skila tillögum er til og með 8. júlí 2025. Tillaga sem berst ekki innan tilgreinds skilafrests eða uppfyllir ekki önnur tilgreind skilyrði keppnislýsingar verður útilokuð frá dómi dómnefndar. Keppendur bera ábyrgð á að innsendingar séu í samræmi við skilalýsingu. Nánari upplýsingar veitir menningar- og ferðamálafulltrúi Vesturbyggðar og er hann bundinn trúnaði.