Hoppa yfir valmynd

Innleiðing frístunda­styrkja í vinnslu

Unnið er að innleið­ingu frístunda­styrkja fyrir börn og ungmenni en vinnan hefur tekið lengri tíma en upphaf­lega var gert ráð fyrir. Tryggt verður að öll sem eiga rétt á styrk fyrir árið 2026 geti nýtt hann.


Skrifað: 25. júní 2026

Við upphaf árs var samþykkt að taka upp frístundastyrki fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6–18 ára frá og með árinu 2026. Vinnan við að móta reglur, umsóknarferli og framkvæmd styrkjanna hefur reynst umfangsmeiri en áætlað var.

Tryggt verður að öll börn og ungmenni sem eiga rétt á frístundastyrk fyrir árið 2026 geti nýtt sér hann, óháð því hvenær á árinu stofnað var til kostnaðar vegna viðurkennds frístundastarfs.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag umsókna og framkvæmd styrkjanna verða birtar um leið og vinnunni lýkur.