Opinn fundur ferðaþjóna um almyrkva
Sveitarfélagið boðar til opins fundar fyrir rekstraraðila í ferðaþjónustu og aðra sem starfa á því sviði í aðdraganda almyrkvans sem verður 12. ágúst 2026. Fundurinn fer fram í fjarfundi á Teams fimmtudaginn 12. febrúar kl. 14:00–15:00.
Markmið fundarins er að miðla stöðu undirbúnings vegna almyrkvans og skapa vettvang fyrir samtal og samráð við þá aðila sem kunna að verða fyrir áhrifum af aukinni aðsókn ferðamanna af þessu tilefni. Á fundinum verður fyrst farið yfir hvar undirbúningur sveitarfélagsins stendur. Í kjölfarið gefst þátttakendum kostur á að bera fram spurningar og að lokum verður opin umræða þar sem sjónarmið og hugmyndir geta komið fram.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem starfa í ferðaþjónustu en öll áhugasöm eru velkomin að taka þátt. Hlekkur inn á fundinn er hér fyrir neðan. Upplýsingar um undirbúning vegna almyrkvans veitir menningar- og ferðamálafulltrúi.