Hoppa yfir valmynd

Skráning í vinnu­skóla hafin

Opið hefur verið fyrir skrán­ingar í vinnu­skólann sumarið 2026 sem hefst miðviku­daginn 10. júní. Tekið verður við umsóknum til og með mánu­dagsins 1. júní.


Skrifað: 18. maí 2026

Fyrirvari

Starfsemi vinnuskólans er háð þeim fyrirvara að það takist að ráða flokkstjóra og yfirflokkstjóra.

Umsóknarfrestur hefur nú verið lengdur til og með 22. maí og mun staðan skýrast betur í kjölfarið. Óskandi væri að þau ungmenni sem hyggja á að sækja um vinnuskólann gerðu það sem fyrst svo hægt sé að meta umfang starfseminnar í sumar.

Umsóknir

Sótt er um í vinnuskólann með því að fylla út skráningareyðublað á íbúagáttinni, hlekkur er efst á heimasíðunni. Forráðamaður sækir um fyrir hönd ungmennis.

Vinnutímar eru sem hér segir:

  • 10. bekkur: 8 vikur, 7 klukkustundir á dag.
  • 9. bekkur: 8 vikur, 7 klukkustundir á dag.
  • 8. bekkur: 6 vikur, 4 klukkustundir á dag.
  • 7. bekkur: 4 vikur, 4 klukkustundir á dag.

Nánari upplýsingar veitir menningar- og ferðamálafulltrúi.

Menningar- og ferðamálafulltrúi

VMÞ

muggsstofa@vesturbyggd.is/+354 450 2335