Viðtalstími bæjarstjóra
Hægt er að bóka fund í gegnum hlekk hér.
Almennt er staðsetning fundanna í ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75, Patreksfirði, en einnig er hægt að velja að hafa fundina í fjarfundi og tilgreina það þá við bókun. Viðtalstímar utan ráðhúss verða auglýstir sérstaklega en boðið verður upp á fundi í byggðakjörnum sveitarfélagsins.
Um viðbótarþjónustu er að ræða frá því sem verið hefur. Áfram verður hægt að hafa samband á skrifstofu Vesturbyggðar og óska eftir fundi við bæjarstjóra utan auglýsts viðtalstíma ef sá tími hentar ekki.
