Hoppa yfir valmynd

Vinnu­skóli á Patreks­firði

Ráðið hefur verið í stöðu flokk­stjóra fyrir vinnu­skólann á Patreks­firði og því hefur skráning nú verið opnuð.


Skrifað: 28. maí 2025

Forráðamenn geta skráð ungmenni í vinnuskólann til og með miðvikudagsins 4. júní. Gert er ráð fyrir að starfsemi vinnuskólans hefjist þriðjudaginn 10. júní.

Að lokinni skráningu verður ákveðin skipting í hópa með hliðsjón af fjölda ungmenna.

  • 10. bekkur: 8 vikur, 7 klst á dag. 
  • 9. bekkur: 8 vikur, 7 klst á dag. 
  • 8. bekkur: 6 vikur, 4 klst á dag. 
  • 7. bekkur: 4 vikur, 4 klst á dag. 

Sótt er um á íbúagátt Vesturbyggðar, en þar má finna skráningareyðublað fyrir vinnuskóla.

Tómstundafulltrúi

false