Gott að eldast
Vesturbyggð, ásamt Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað, Súðavíkurhrepp og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, tekur þátt í þróunarverkefni sem gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu eldra fólks í heimahúsum.
Alls taka 22 sveitarfélög og sex heilbrigðisstofnanir þátt í verkefnunum um allt land, sem skipt er upp á sex svæði. Verkefnið mun standa til ársins 2027.
Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast en með henni taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.
Aðgerðaáætluninni er skipt upp í fimm þætti, hverjum með sínum undirverkefnum. Þeir eru: samþætting, virkni, upplýsing, þróun og heimili.
Allar aðgerðir miða að því að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu, sem allra lengst. Og þá verður svo sannarlega gott að eldast á Íslandi.
Samstarfssamningur HVest og Vesturbyggðar
Í gildi er samstarfssamningur Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og Vesturbyggðar um rekstur samþættrar heimaþjónustu í sveitarfélaginu. Samningurinn er hluti af verkefninu Gott að eldast.
Heilbrigðisstofnunin annast rekstur heimastuðnings í samstarfi við sveitarfélagið. Markmið samstarfsins er að veita heildstæða og samhæfða þjónustu til íbúa sem þurfa stuðning til að geta búið heima við sem best lífsgæði.
Heimahjúkrun og heimastuðningur er veittur frá heilsugæslunni af heimaþjónustuteymi Gott að eldast.
- Sótt er um heimahjúkrun í gegnum lækni á heilsugæslu.
- Sótt er um heimaþjónustu í gegnum Vesturbyggð.